Innnes ehf.
Innnes ehf.
Innnes ehf.

Verkstæði - Kaffiþjónusta Innnes

Kaffiþjónusta Innnes leitar að öflugum einstaklingi á verkstæði okkar í Reykjavík sem getur hafið störf fljótlega.

Innnes er ein stærsta og öflugasta heildsala landsins á sviði matvöru og eru vörumerki fyrirtækisins neytendum vel kunnug. Helstu viðskiptavinir Innnes eru stærstu matvöruverslanir landsins, hótel, veitingastaðir, mötuneyti, skólar o.fl. Hjá Innnes starfa um 200 manns.

Fyrirtækið leggur áherslu á að skapa starfsfólki sínu góða vinnuaðstöðu og öflugan starfsanda ásamt því að veita því tækifæri til að ná árangri og vaxa í starfi. Innnes starfrækir jafnlaunakerfi í samræmi við jafnréttis- og launastefnu fyrirtækisins. Innnes hvetur alla, óháð kyni, til að sækja um störf hjá fyrirtækinu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Bilanagreining og viðgerðir á kaffi- og vatnsvélum
  • Uppsetning á kaffi- og vatnsvélum hjá viðskiptavinum
  • Samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af viðgerðum raftækja kostur
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Mjög góð þjónustulund og á auðvelt með samskipti
  • Áhugi á tæknivinnu og vill læra og þróast
  • Getur unnið skipulega og fylgt verkefnum eftir
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Almenn tölvukunnátta (skilyrði)
  • Ökuréttindi (skilyrði)

Vinnutími er mánudaga - fimmtudaga 8:00 - 16:00 og föstudaga 8:00 - 15:15.

Innnes hvetur öll, óháð kyni, til að sækja um.

Umsóknir:

Eingöngu er tekið við umsóknum á vefsíðu Innnes. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá með mynd (CV) á MS Word eða PDF formi og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir færni í starfið og ástæðu umsóknar.

Umsóknarfrestur er til og með 30.nóvember 2026.

Hlökkum til að heyra frá þér!

Advertisement published16. November 2026
Application deadline30. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Korngarðar 3, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Non smokerPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags