

Verkefnastjóri / Sölustjóri
Vilt þú verða hluti af landsliðsteymi Múlakaffis?
Við leitum að drífandi og öflugum liðsmanni til að leiða sölustarf Múlakaffis og taka þátt í áframhaldandi vexti fyrirtækisins.
Í starfinu felst jafnframt spennandi tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu og leiða sölustarf nýs veislusalar, Vör, sem mun opna við Sundahöfn haustið 2026.
Ef þú hefur brennandi áhuga á sölu, þjónustu og uppbyggingu sterkra viðskiptasambanda, gæti þetta verið tækifærið fyrir þig.
- Umsjón með sölumálum veisluþjónustu Múlakaffis og samskipti við viðskiptavini
-
Ábyrgð á sölumarkmiðum, söluáætlunum og árangri
-
Virk þátttaka í sölu og öflun nýrra viðskiptavina
-
Uppbygging og viðhald langtímasambanda við viðskiptavini
-
Samningagerð og eftirfylgni með lykilviðskiptavinum
-
Náið samstarf við stjórnendur, vöruþróun og aðrar lykildeildir
-
Önnur tilfallandi verkefni tengd starfinu
- Háskólamenntun
- Reynsla af sölu- og verkefnastjórnun æskileg
- Drifkraftur, fumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
Icelandic
English










