
Advania
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar við að einfalda störf viðskiptavina okkar með snjallri nýtingu á upplýsingatækni. Þó við séum sérfræðingar í tækni viljum við veita framúrskarandi þjónustu. Við hlúum að fólkinu okkar og hjálpumst að við að skapa lifandi vinnustað.
Advania á Íslandi er hluti af Advania-samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með yfir 50 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa yfir 5000 sérfræðingar í upplýsingatækni.

Verkefnastjóri rekstrarlausna
Við leitum að öflugum verkefnastjóra til að ganga til liðs við samheldið teymi verkefnastjóra hjá rekstrarlausnum Advania. Hlutverkið felur í sér stýringu fjölbreyttra verkefna fyrir viðskiptavini okkar með áherslu á hýsingu og rekstur.
Við leggjum ríka áherslu á samvinnu, fagmennsku og stöðugar umbætur. Starfið felur í sér náið samstarf með sérfræðingum og viðskiptavinum við að tryggja árangursríka framkvæmd verkefna og framúrskarandi upplifun viðskiptavina.
Helstu verkefni
- Stýring upplýsingatækni-, hýsingar- og rekstrarverkefna frá upphafi til enda
- Áætlunargerð, eftirfylgni og samskipti við viðskiptavini og hagaðila
- Tryggja skilvirka samvinnu verkefnateyma og að verkefni gangi samkvæmt áætlun
- Greining og stjórnun áhættu, breytinga og forgangsröðunar
- Virk þátttaka í umbótum og verklagi
Við leitum að einstaklingi sem hefur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynslu af verkefnastýringu á sviði upplýsingatækni
- Getu til að halda utan um mörg verkefni samhliða og ná árangri
- Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni
- Frumkvæði, drifkraft og lausnamiðað hugarfar
- Sterka þjónustulund og áhuga á að byggja upp góð tengsl við viðskiptavini
- Vottun í verkefnastjórnun er kostur
Hjá okkur færð þú
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni hjá leiðandi upplýsingatæknifyrirtæki
- Frábært starfsumhverfi þar sem skoðanir og hugmyndir starfsfólks skipta máli
- Tækifæri til að hafa áhrif á þróun þjónustu og verklags
- Öflugt teymi verkefnastjóra sem styður hvert annað og deilir þekkingu
- Sveigjanlegt vinnuumhverfi og gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs
- Stuðning við starfsþróun, símenntun og faglegan vöxt
- Samkeppnishæf kjör
Advertisement published10. August 2026
Application deadline20. August 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (4)
Similar jobs (12)

Shift Manager
Bus4u Iceland

Verkefnastjóri kjara- og réttindamála
Sjúkraliðafélag Íslands

Stafrænn þróunarstjóri
Skrifstofa Alþingis

Viðskiptastjóri hugvits og tækni
Íslandsstofa

Verkefnastjóri - Innleiðing viðskiptavina
atNorth

Tæknilegur verkefnastjóri
Söluskrifstofa Keahótela

Project Manager
Borealis Data Center ehf.

Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu
Datera ehf.

Verkefnastjóri framkvæmda
Alva Capital ehf.

Liðsstjóri Samþættingateymis
Sýn

Verkefnastjóri fjárfestinga og atvinnuþróunar
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Senior Product Manager for Weighing & Grading
JBT Marel