

Verkefnastjóri mannauðsmála
Háskólinn á Akureyri leitar að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við metnaðarfullt mannauðs- og samskiptasvið háskólans. Verkefnastjóri mannauðsmála þjónustar allar einingar háskólans og starfar náið með stjórnendum og öðru starfsfólki sviðsins. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri mannauðs- og samskiptasviðs. Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á sviði mannauðsmála og náið samstarf við stjórnendur og starfsfólk. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að skapa vinnuumhverfi þar sem fólk getur vaxið, haft áhrif og fundið að það tilheyri.
Verkefnastjóri hefur frumkvæði og faglega forystu í fjölbreyttum verkefnum á sviði mannauðsmála. Í starfinu felst ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk, þróun og innleiðing verkferla, þátttaka í úrlausn viðkvæmra og flókinna mála og stuðningur við jákvæða vinnustaðamenningu. Helstu verkefni eru:
- Umsjón með og þróun ráðningar- og móttökuferla hjá háskólanum
- Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk í mannauðsmálum
- Framkvæmd og túlkun laga, reglna, kjarasamninga, stefna og annarra gagna sem varða mannauðsmál
- Þátttaka í verkefnum sem lúta að viðveru, vellíðan og vinnustaðamenningu
- Greining og eftirfylgni mannauðsupplýsinga
- Önnur og fjölbreytt verkefni á sviði mannauðsmála háskólans
- Háskólapróf á meistarastigi sem nýtist í starfi, svo sem á sviði mannauðsstjórnunar, lögfræði eða opinberrar stjórnsýslu
- Þekking og færni í að greina, túlka og beita lögum, reglum, kjarasamningum og öðrum réttarheimildum við úrlausn mannauðsmála
- Góð greiningarhæfni og færni í að vinna úr upplýsingum og setja niðurstöður fram á skýran og skipulegan hátt
- Reynsla af faglegri ráðgjöf og úrlausn mála á sviði mannauðs, vinnuréttar eða opinberrar stjórnsýslu
- Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt
- Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni
- Heilindi, fagmennska og hæfni til að vinna með trúnaðarupplýsingar
- Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti bæði á íslensku og ensku
- Gerð er krafa um vammleysi, gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist eðli og ábyrgð starfsins.
Umsókn skal fylgja:
- Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
- Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum
- Kynningarbréf þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
- Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda
Icelandic
English








