Brú Talent ehf.
Brú Talent ehf.

Launafulltrúi sem langar í meira

Hefur þú reynslu af launavinnslu en langar í hlutverk sem snýst um meira en að keyra laun?
Hefur þú gaman af því að einfalda vinnulag, nýta tæknina betur og koma auga á leiðir til að gera góða ferla enn betri?

Brú Talent leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum launafulltrúa fyrir öflugt og framsækið fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.

Launavinnsla er vissulega mikilvægur hluti starfsins, en hún er ekki allt starfið. Hún er að mestu unnin síðustu daga mánaðarins og þess á milli gefst gott svigrúm til að sinna umbótum, greiningum, þróun kerfa og öðrum fjölbreyttum verkefnum á sviði launa- og mannauðsmála.

Við leitum því ekki aðeins að einstaklingi sem kann að vinna laun. Við leitum að einstaklingi sem spyr líka: Getum við gert þetta einfaldara, öruggara eða skilvirkara?

Það sem gerir starfið sérstakt

Launavinnslan er unnin í teymi en ekki af einum aðila. Það skapar sterka faglega samvinnu, stuðning og sveigjanleika, auk þess sem ábyrgð og þekking dreifist á fleiri en einn einstakling.

Fyrirkomulagið gerir launafulltrúum jafnframt kleift að taka frí yfir mánaðarmót. Það er kostur sem er ekki sjálfgefinn í störfum af þessu tagi.

Starfið býður einnig upp á raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á hvernig hlutirnir eru gerðir. Rétti einstaklingurinn fær svigrúm til að skoða ferla með gagnrýnum augum, leggja til breytingar og taka þátt í að innleiða nýjar lausnir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með launavinnslu og tengdum verkefnum
  • Undirbúningur, afstemming og eftirlit með launagögnum
  • Samskipti við starfsfólk og stjórnendur vegna launa- og kjaramála
  • Skráningar, upplýsingagjöf og reglubundin skýrslugerð
  • Greining launa- og mannauðsgagna
  • Þátttaka í umbótum og einföldun verkferla
  • Þróun og bætt nýting launa- og mannauðskerfa
  • Skoðun á tækifærum til sjálfvirknivæðingar og nýtingar gervigreindar
  • Stuðningur við samstarfsfólk í mannauðsteymi
  • Önnur fjölbreytt verkefni eftir áhuga, reynslu og styrkleikum viðkomandi
Við leitum að einstaklingi sem
  • hefur reynslu af launavinnslu en hún þarf ekki að vera mikil
  • býr yfir nákvæmni, ábyrgðartilfinningu og öguðum vinnubrögðum
  • hefur gaman að því að aðstoða og á auðvelt með fagleg samskipti
  • heldur ró sinni þegar mikið er að gera og tímamörk eru skýr
  • hefur áhuga á að þróa ferla og nýta tæknina betur
  • sýnir frumkvæði og fylgir verkefnum eftir
  • er forvitinn, lausnamiðaður og tilbúinn að læra
  • kann að meta gott samstarf en getur jafnframt unnið sjálfstætt
  • hefur sveigjanleika og áhuga á að taka að sér fjölbreytt verkefni

Það væri sérstaklega spennandi ef þú

  • hefur unnið í H3 launakerfi
  • þekkir til tímaskráningarkerfa
  • ert fær í Excel og hefur áhuga á greiningu gagna
  • hefur reynslu af Power BI eða öðrum greiningar- og framsetningartólum
  • hefur áhuga á sjálfvirknivæðingu, gervigreind og stafrænni þróun
  • hefur gott auga fyrir því hvar óþarfa handavinna eða sóun leynist í ferlum
  • vilt taka þátt í að þróa launavinnslu til framtíðar

Við gerum ekki kröfu um að þú getir hakað við allt á listanum. Mikilvægast er að þú hafir reynslu af launavinnslu, sterkan faglegan grunn og áhuga á að vaxa og þróast áfram í starfinu.

Advertisement published2. October 2026
Application deadline16. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Payroll processingPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags