Fagkaup ehf
Fagkaup ehf
Fagkaup ehf

Verkefnastjóri- Gögn & Gervigreind

Viltu móta hvernig gögn og gervigreind umbreyta íslenskum iðnaði?

Fagkaup leitar að öflugum verkefnastjóra sem vill leiða uppbyggingu á gagnadrifnum rekstri. Þetta er lykilhlutverk í stafrænu umbreytingarferli þar sem markmiðið er skýrt: betri gögn, betri ákvarðanir og hagnýt gervigreind sem skilar raunverulegu virði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skilgreina og leiða verkefni tengd grunngögnum (Master Data): vörum, birgjum, viðskiptavinum o.fl.
  • Mæla og bæta gagnagæði með skýrum mælikvörðum
  • Leiða verkefni sem snúa að samþættingu kerfa og gagnaflæði milli þeirra
  • Byggja upp hagnýtar gervigreindarlausnir sem styðja sölu og þjónustu
  • Samræma vinnu milli rekstrar, upplýsingatækni og ytri samstarfsaðila
  • Leiða innleiðingu í nánu samstarfi við upplýsingatæknistjóra

Umhverfið

Business Central · Power BI · Data Warehouse · Azure · Microsoft Fabric

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegu
  • Bakgrunnur í hugbúnaðarþróun eða forritun (t.d. SQL, Python, API-ar)
  • Reynsla af verkefnastjórnun, helst í gagna-, BI- eða gervigreindarverkefnum
  • Skilningur á grunngögnum, gagnagæðum og gagnastjórnun (data governance)
  • Hæfni til að greina þarfir reksturs og útfæra þær í skýrar tæknilegar lausnir
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og þvert á deildir, sem og með ytri samstarfsaðilum
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
  • Reynsla af Microsoft-umhverfi og innleiðingu gervigreindarlausna er kostur

Markmið starfsins 

  • Veruleg og mælanleg bæting gagnagæða
  • Lausnir sem hafa sýnileg áhrif í daglegum rekstri
  • Markviss skref sem byggja upp langtíma samkeppnisforskot
Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur til umhverfisvænna ferðamáta 
  • Niðurgreiddur hádegismatur

 

Að auki bjóðum við: 

  • Góðan vinnustað þar sem lögð er rækt við vellíðan og vöxt starfsfólks
  • Frábæra vinnufélaga og góðan starfsanda
  •  Árlega heilsufarsskoðun og heilsueflingu
  •  Afsláttarkjör af vörum félagsins
  •  Ýmsa viðburði á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi 
Advertisement published5. October 2026
Application deadline25. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Klettagarðar 25, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Software testingPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Computer securityPathCreated with Sketch.IT project managementPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags