SIGLÓVEITINGAR
SIGLÓVEITINGAR
SIGLÓVEITINGAR

Veitingastjóri óskast

Við leitum að metnaðarfullum og þjónustulunduðum veitingastjóra til að leiða veitingarekstur hjá Siglóveitingum. Um er að ræða spennandi og fjölbreytt starf þar sem áhersla er lögð á framúrskarandi þjónustu, fagmennsku og gott samstarf við starfsfólk og stjórnendur. Siglóveitingar sjá um og reka veitingaþjónustu á Sigló Hóteli, Rauðku, Hannes boy og Torginu. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni:

  • Dagleg stjórnun og skipulag veitingastarfs
  • Umsjón með þjónustu og gæðum í matsal og bar
  • Starfsmannahald, þjálfun og leiðsögn
  • Ábyrgð á vaktaplani og vinnuferlum
  • Samskipti við gesti og úrlausn mála eftir þörfum
  • Vinna að því að skapa jákvæða upplifun fyrir gesti
Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af veitingastjórn eða sambærilegu starfi
  • Góð leiðtogahæfni og skipulagshæfileikar
  • Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
  • Reynsla af hótel- eða veitingarekstri er kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi

 Við bjóðum:

  • Áhugavert og fjölbreytt starf  
  • Tækifæri til að vaxa og öðlast fjölþætta reynslu 
  • Tækifæri til að hafa áhrif á þróun og gæði þjónustu
  • Laun samkvæmt samkomulagi
  • Húsnæði í boði gegn leigu 
Advertisement published21. April 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Gránugata 19, 580 Siglufjörður
Type of work
Professions
Job Tags