Vaktavinnustarf í fóðurverksmiðju Líflands
Starf í fóðurverksmiðju Líflands
Lífland leitar að öflugum og handlögnum starfsmanni til að sinna ýmsum verkefnum í fóðurverksmiðju Líflands á Grundartanga. Um er að ræða vaktavinnu starf. Vaktirnar eru til skiptis frá kl. 8-17 eina viku (mán-fös) og kl. 17-02 aðra viku (mán-fim).
Lífland sér um ferðir/bílastyrki frá Reykjavík/Akranesi/Borgarnesi á Grundartanga.
Helstu verkefni eru:
• Keyrsla á framleiðslulínum
• Sekkjun í smásekki og stórsekki
• Þrif á verksmiðju
• Ýmis tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Góð tölvukunnátta
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Öguð vinnubrögð
• Snyrtimennska og stundvísi
• Bílpróf
• Vinnuvélaréttindi æskileg
Nánari upplýsingar veitir Rannveig Hrólfsdóttir mannauðsstjóri í tölvupósti: rannveig@lifland.is