Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Upplýsingafræðingur á bókasafn HR - Mótaðu framtíð þekkingar

Bókasafn Háskólans í Reykjavík leitar að öflugum og metnaðarfullum upplýsingafræðingi til starfa í teymi sem sinnir fræðslu og stuðningi við nemendur.Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf í lifandi háskólaumhverfi þar sem lögð er áhersla á þjónustu, nýsköpun og framúrskarandi námsupplifun. Starfið hentar einstaklingi sem hefur áhuga á kennslu, upplýsingalæsi og því að styðja nemendur við rannsóknir, heimildavinnu og ábyrga notkun upplýsinga og gervigreindar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vera tengiliður bókasafns við ákveðnar deildir innan HR.
  • Skipuleggja og sinna kennslu í upplýsingalæsi fyrir nemendur.
  • Veita einstaklingsráðgjöf og taka á móti nemendum í tímapöntunum vegna heimildaleitar og heimildavinnu.
  • Taka þátt í uppbyggingu nýs ritvers bókasafnsins og þróun þjónustu sem styður nemendur í fræðilegri ritun og verkefnavinnu.
  • Leiðbeina nemendum um ábyrga og gagnrýna notkun gervigreindar í námi og verkefnavinnu.
  • Þróa og viðhalda leiðbeiningum, kennsluefni og öðru fræðsluefni.
  • Taka virkan þátt í þróun þjónustu bókasafnsins og teymisvinnu innan safnsins.
  • Sinna upplýsingaþjónustu og öðrum tilfallandi verkefnum bókasafnsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaragráða í upplýsingafræði eða sambærileg menntun.
  • Áhugi á kennslu og miðlun þekkingar.
  • Kennslureynsla eða reynsla af fræðslu er kostur.
  • Áhugi á og þekking á gervigreind og notkun hennar í háskólanámi er kostur.
  • Áhugi á og/eða reynsla af þróun náms- og ritstuðnings fyrir háskólanemendur er kostur.
  • Rík þjónustulund og mjög góð samskiptahæfni.
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góð skipulagshæfni.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Góð tölvu- og tæknikunnátta.
Advertisement published24. November 2026
Application deadline8. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags