

Umsjónarmaður íþróttamannvirkja
Starf umsjónarmanns íþróttamannvirkja hjá Reykhólahreppi er nú laust til umsóknar. Leitað er eftir áhugasömum, drífandi og ábyrgðarmiklum starfsmanni til að halda utan um rekstur íþróttamannvirkja sveitarfélagsins og taka þátt í uppbyggingu þeirra til bættrar þjónustu og aðbúnaðar. Um er að ræða 100% starf.
Starfslýsing
Umsjónarmaður íþróttamannvirkja hefur umsjón með húseignum, tækjum og innanstokksmunum íþróttamannvirkja og sinnir daglegum rekstri sundlaugar, líkamsræktar, íþróttahúss og tjaldsvæðis í þorpinu á Reykhólum. Starfið heyrir undir lýðheilsufulltrúa Reykhólahrepps sem er jafnframt næsti yfirmaður.
Daglegur rekstur sundlaugar, íþróttahúss og líkamsræktar
Sundlaugavarsla í sundlaug á móti öðrum starfsmönnum
Daglegur rekstur tjaldsvæðis Reykhóla yfir sumartíma
Vaktastjórnun og skipulag vaktaáætlana
Þrif íþróttamannvirkja og umsjón með þrifaáætlun
Eftilit með öryggi íþróttamannvirkja og reglufylgni
Innkaup og umjón með birgðahaldi
Minniháttar viðhald íþróttamannvirkja
Aðstoð við fjárhagsáætlunargerð
Ábyrgð á skýrslugjöf, bókunum og uppgjöri
Upplýsingagöf og samskipti við þjónustuþega
Iðnmenntun eða framhaldsskólapróf skilyrði
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Starfsreynsla við rekstur, innkaup og stjórnun æskileg
Frumkvæði og geta til að starfa í teymi og sjálfstætt
Þjónustulund, heiðarleiki og framúrskarandi færni í samskiptum
Góð almenn tölvukunnátta
Hreint sakavottorð er skilyrði
Ökuréttindi skilyrði
Kostur ef viðkomandi hefur lokið námskeiði sundlaugavarða
Starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps í fast starf hjá sveitarfélaginu fær flutningsstyrk, tómstundastyrk og nýtur gjaldfrjáls leikskóla. Á Reykhólum er húsnæði laust til leigu.
Icelandic
English










