

Laus staða frístundaleiðbeinanda í Reykhólahreppi
Reykhólahreppur auglýsir laust starf frístundaleiðbeinanda hjá sveitarfélaginu. Leitað er eftir jákvæðum, drífandi og skapandi starfsmanni sem hefur gaman af því að vinna með börnum og ungmennum í starfi frístundar og félagsmiðstöðvar á Reykhólum. Um er að ræða 50% starf með möguleika á hærra starfshlutfalli.
Aðstoð við faglegt starf frístundaheimilis og félagsmiðstöðvar
Starfar með börnum og ungmennum undir leiðsögn frístundaráðgjafa
Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
Leiðbeinir og fylgist með börnum og ungmennum í leik og starfi
Undirbúningur eigin verkefna, viðburða eða leikja
Starfar við sumarnámskeið á vegum Reykhólahrepps
Reynsla af störfum með börnum og ungmennum
Áhugi og metnaður að starfa með börnum og ungmennum
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Sveigjanleiki og geta til að starfa í teymi
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Almenn tölvukunnátta
Stundvísi, heiðarleiki og samviskusemi
Hreint sakavottorð er skilyrði
Starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps í fast starf hjá sveitarfélaginu fær flutningsstyrk, tómstundastyrk og nýtur gjaldfrjáls leikskóla. Á Reykhólum er húsnæði laust til leigu.
Icelandic
English










