Búmenn hsf.
Búmenn hsf.

Umsjónarmaður fasteigna óskast

Búmenn húsnæðissamvinnufélag óskar eftir að ráða umsjónarmann fasteigna.

Starfið felst í umsjón með viðhaldi og rekstri um 540 fasteigna í eigu félagsins.

Eignirnar eru íbúðir eða parhús sem félagsmenn Búmanna hafa keypt í búseturétt, staðsettar á höfuðborgasvæðinu, Reykjanesi, Þorlákshöfn, Hveragerði, Höfn, Akureyri, Akranesi .

Leitað er að þjónustulunduðum, samviskusömum og skipulögðum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt og á auðvelt með mannleg samskipti.

Um er að ræða fullt starf á skrifstofu Búmanna í Reykjavík en starfinu geta fylgt ferðalög út á land.

Æskilegt er að starfsmaðurinn geti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um Búmenn eru á www.bumenn.is

Helstu verkefni og ábyrgð

-          Dagleg umsjón með viðhaldi fasteigna.

-          Gerð viðhaldsáætlana.

-          Samskipti við íbúa í eignum Búmanna.

-          Samningagerð og samskipti við verktaka.

-          Eftirlit með viðhaldsverkefnum og kostnaðaraðhald.

Menntunar- og hæfniskröfur

-          Menntun á sviði byggingatækni og/eða iðnmenntun.

-          Reynsla og þekking á viðhaldsverkefnum og byggingum.

-          Góð samskiptahæfni, sveigjanleiki og þjónustulund.

-          Góð íslensku- og tölvukunnátta.

-          Snyrtimennska, nákvæmni í starfi og stundvísi.

Advertisement published22. January 2026
Application deadline10. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Lágmúli 7, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relations
Professions
Job Tags