Umsjónarkennari í Náms – og starfssetri
Klettabær leitar að öflugum og lausnamiðuðum einstakling með jákvætt viðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileika til að sinna starfi umsjónarkennara í Náms- og starfssetri Klettabæjar sem er sérhæft og einstaklingsmiðað nám er mætir færni og áhuga.
Meginmarkhópur Klettabæjar eru börn og ungmenni með margþættar þarfir sem þurfa sértæka og/eða einstaklingsmiðaða nálgun og þjónustu. Unnið er eftir hugmyndafræði um áfalla- og tengslamiðaðan stuðning. Markmiðið er að stuðla að jöfnum tækifærum ungs fólks til þátttöku og lífsgæða í samfélaginu á eigin forsendum.
Í NOS er unnið eftir hugmyndafræðinni áfalla- og tengslamiðaður stuðningur. Miðað er að því að mæta hverjum og einum einstaklingi út frá þeirra þörfum með því að bjóða upp á eins þroskavænlegt námsumhverfi og hægt er. Miðað er að því að mæta nemanda þar sem hann er staddur hverju sinni. Horft er til áhugasviða hans og reynt að innleiða það í faggreinar.
Einkennisorð Klettabæjar eru ástríða, fagmennska, gleði og umhyggja.
- Sér um kennslu sem felur í sér breytingu á námsmarkmiðum árganga, námsaðstæðum og kennsluaðferðum
- Vinnur að sjónrænni útfærslu á námsumhverfi í anda skipulagðrar kennslu
- Hefur yfirsýn yfir starfið og skipuleggur það frá degi til dags með tilliti til mismunandi nálgunarleiða í kennslu og miðlun námsefnis
- Vinnur með deildarstjóra að gerð einstaklingsnámskrá fyrir hvern nemanda sem byggir á félags- og námslegri stöðu og metur reglulega ásamt öðrum sem að kennslunni koma
- Setur upp hvatningarkerfi fyrir nemendur í samráði við fagteymi Klettabæjar
- Leiðbeinir stuðningsfulltrúum í starfi
- Tekur virkan þátt í að þróa skólastarfið
- Gerir stöðumatsskýrslu/mánaðaryfirlit fyrir hvern nemanda og skilar til aðila sem að málum nemanda koma
- Leggur áherslu á að skapa öryggi, tengsl og gott samstarf við nemendur
- Sér til þess að sérhver nemandi fái viðfangsefni við hæfi og hvetur til sjálfstæðra vinnubragða
- Vinnur önnur verkefni sem stjórn skólans óskar eftir
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu á grunn- eða framhaldsskólastigi
- Framhaldsnám í sérkennslufræðum æskileg
- Reynsla af kennslu- og uppeldisstarfi með börnum og ungmennum kostur
- Afburða færni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af sérkennslu kostur
- Skipulags – og aðlögunarhæfni
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslensku kunnátta í ræðu og riti