Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ

Umsjónarkennari í Hofsstaðaskóla

Hofsstaðaskóli auglýsir eftir umsjónarkennara skólaárið 2026-2027. Í skólanum verða um 500 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.

Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendahópi
  • Skipuleggur nám og kennslu nemenda
  • Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu með umsjónarkennurum í árgangi ásamt öðrum fagaðilum sem koma að nemendum
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
  • Lipurð í samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
  • Ánægja af starfi með börnum og ungmennum
  • Reynsla af Leiðsagnarnámi er æskileg
  • Þekking á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar er æskileg

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Advertisement published20. March 2026
Application deadline13. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Skólabraut 5, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags