

Umsjónarkennari á miðstigi - Egilsstaðaskóli
Egilsstaðaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna umsjónarkennslu á miðstigi.
Um er að ræða 100% starf frá 1. ágúst 2026.
Næsti yfirmaður er skólastjóri.
Í Egilsstaðaskóla eru rúmlega 400 nemendur. Einkunnarorð skólans eru gleði, virðing og metnaður og endurspeglast þau í daglegu starfi, samskiptum og skólabrag.
Í skólanum er áhersla á vellíðan, farsæld og árangur allra nemenda og starfsfólks. Unnið er að innleiðingu hugmyndafræði Heillaspora og Leiðsagnarnáms og gæða kennslu. Unnið er eftir hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar.
Áhersla er á jákvæð samskipti, virka þátttöku nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Undanfarið hefur skólinn unnið að verkefninu „Sterkir hópar“ þar sem markmiðið er að styrkja jákvæðan anda í nemendahópunum og efla þannig forvarnir gegn einelti, samskiptavanda og meiðandi samskiptum.
Í skólanum er teymiskennsla og teymisvinna og rík samvinnumenning meðal starfsfólks.
- Annast kennslu nemenda samkvæmt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla í samráði skólastjóra og aðra kennara með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
- Fylgjast með velferð nemenda, hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar.
- Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags.
- Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla.
- Vinna samkvæmt stefnu og gildum skólans.
- Leyfisbréf til kennslu (skal fylgja umsókn).
- Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg.
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Skipulagshæfni.
- Mjög góð íslenskukunnátta.
- Hreint sakavottorð.
Icelandic










