Vallaskóli, Selfossi
Vallaskóli, Selfossi
Vallaskóli, Selfossi

Umsjónar- og faggreinakennari á unglingastigi í Vallaskóla - 100% staða

Auglýst er eftir 100% stöðu umsjónar- og faggreinakennara á unglingastigi frá 1. ágúst 2026

Vallaskóli er um 520 nemenda skóli í hjarta Selfoss. Sérstaða skólans er m.a. öflugt list- og verkgreinastarf og við skólann er er fjölmenningardeild. Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að skólastarfinu koma. 

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.  
  • Umsjón með daglegu skólastarfi og viðkomandi nemendahópum.  
  • Tekur þátt í teymisvinnu/teymiskennslu í árgangi. 
  • Samskipti á vegum skólans og við foreldra/forráðamenn.  
  • Fylgist með velferð nemenda og hlúir að þeim í samstarfi við fagaðila eftir þörfum.  
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara.  
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.  
  • Hæfni og áhugi á skólastarfi. 
  • Góð færni í mannlegum samskiptum. 
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.  
  • Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur.  
Advertisement published31. March 2026
Application deadline19. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Sólvellir 2, 800 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags