Leikskólinn Ösp
Leikskólinn Ösp

Leikskólakennari - leikskólaliði

Erum við að leita að þér? Við þurfum að bæta við frábært starfsmannateymið okkar hér í leikskólanum Ösp fyrir haustið 2026.

Markmið okkar er að stuðla að jöfnum tækifærum barna til að láta drauma sína rætast!

Leikskólakennari eða leikskólaliði óskast til starfa í leikskólann Ösp, sem er staðsettur í hjarta Fellahverfisins. Við leikskólann starfar metnaðarfullur starfsmannahópur með margvíslega menntun og reynslu, sem nýtir fjölbreyttar leiðir til að styðja við almennan þroska barna. Við hlúum að börnunum í samræmi við þarfir hvers og eins með kærleika og umburðarlyndi að leiðarljósi.

Sjálfsprottinn leikur er meginnámsleið leikskólans, þar sem virk þátttaka starfsfólks spilar stórt hlutverk í að styðja við leik barna. Lögð er áhersla á auðugt málumhverfi, vellíðan og starfsaðferðir sem mæta þörfum fjölbreytileika barnahópsins í leikskólanum, sem er með ríkan tungumála- og menningarbakgrunn.

Starfið er fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi, þar sem enginn dagur er eins og við sköpum ný ævintýri á hverjum degi. Það er mikið og gott samstarf milli leik- og grunnskóla í Fellahverfi og vinnum við markvisst með mál og læsi í samvinnu við leikskólann Holt og Fellaskóla.

Þetta er fullt starfið og er laust í ágúst 2026.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt lögum um leikskóla, aðalnámskrá leikskóla, stefnu og skipulagi.
  • Vinnur með og tekur þátt í leik og starfi með börnunum í leikskólanum.
  • Sinnir þeim störfum innan leikskólans sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara
  • Leikskólakennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði, lágmark á stigi C1 skv. evr. tungumálarammanum
  • Færni í að lesa fyrir börn á íslensku.
  • Reynsla af starfi í leikskóla æskileg.
  • Stundvísi og faglegur metnaður.
  • Frumkvæði, áhugi og vilji til að leita nýrra leiða.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
  • Menningarkort – bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
Advertisement published31. March 2026
Application deadline12. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Iðufell 16, 111 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags