Umsjón með orlofseignum KÍ í Reykjavík
Kennarasambands Íslands í Reykjavík óskar eftir að ráða umsjónaraðili með orlofsíbúðum sambandsins í Vörðuleiti og Borgartúni; alls 13 talsins.
Verksvið umsjónaraðila er:
· að sjá um alla þjónustu og samskipti við gesti
· alhliða umsjón með orlofshúsnæði, þ.m.t yfirferð á íbúðum á skiptidögum
· að sjá um að reglum um frágang sé framfylgt
· almenn þrif og áfylling
· minniháttar viðhald og að kalla til iðnaðarmenn í samráði við skrifstofu þegar þurfa þykir
· að taka að sér þrif gegn greiðslu sé þess óskað af gestum
· önnur störf sem skrifstofa felur viðkomandi
Hæfniskröfur:
· Þekking/reynsla af daglegri umsjón og viðhaldi fasteigna
· Reynsla af léttum viðgerðum
· Rík þjónustulund og mikil samskiptahæfni
· Frumkvæði, skipulaghæfni og sjálfstæð vinnubrögð
· Jákvætt viðmót og metnaður til að halda eignum í topp ástandi
· Reynsla af svipuðu starfi er kostur