Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Tvær stöður þjónustufulltrúa hjá lögreglustjóranum á höfuðbo

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir drífandi og metnaðarfullu starfsfólki í tvær stöður þjónustufulltrúa. Um er að ræða spennandi, krefjandi og fjölbreytt störf í þjónustudeild sem heyrir undir stjórnsýslu- og þjónustusvið embættisins.

Þjónustudeild sinnir margvíslegri þjónustu þvert á embættið og starfrækir m.a. ritaraþjónustu, skýrsluþjónustu, sektarþjónustu, þjónustuborð og munavörslu. Þá heyra málefni tengd skjalastjórnun, leyfisveitingum, stafrænni þróun auk annarra umbótaverkefna undir þjónustudeild.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir öll alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 500 á fjórum megin starfsstöðvum.

Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sinna fjölbreyttum verkefnum tengdum þjónustu við innri og ytri aðila. Upplýsingamiðlun og ráðgjöf, símsvörun, móttaka erinda, skráningar og miðlun upplýsinga innan og utan embættisins. Ritun, ljósritun, flokkun, afhending og frágangur mála.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf og/eða góð reynsla sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
  • Sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki og gott álagsþol
  • Skipulagshæfileikar og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Aðlögunarhæfni og jákvætt og lausnamiðað viðhorf
  • Gott vald á íslensku og ensku og hæfni til að miða upplýsingum í rituðu og töluðu máli
  • Mjög góð almenn tölvufærni

Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika og færni. 

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum.

Advertisement published2. May 2025
Application deadline12. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Hverfisgata 113-115 115R, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags