Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

Þroskaþjálfi með sérþekkingu á þjónustu við fatlað fólk

Við teymi sérfræðinga hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu vantar tvo sérfræðinga til starfa. Annars vegar staða þroskaþjálfa með sérþekkingu á þjónustu við fatlað fólk (Tímabundin ráðning á Akureyri) og hins vegar staða sérfræðings í málefnum barna samkvæmt barnalögum.

Þann 1. janúar sl. tóku sýslumenn við verkefnum varðandi val á persónulegum talsmönnum fyrir fatlað fólk, á grundvelli laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu leiðir starf sýslumanna við hið nýja verkefni um persónulega talsmenn, til reynslu til 31.12.2025. Sérfræðingur vinni einnig að öðrum störfum teymisins, eftir föngum. Starfsstöð þroskaþjálfa verður á Akureyri.

Teymi sáttamanna og sérfræðinga í málefnum barna er starfar hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu veitir þjónustu við öll sýslumannsembætti og sinna verkefnum á landsvísu á grundvelli barnalaga nr. 76/2003.

Um er að ræða tímabundna ráðningu út árið 2025.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Viðtöl við fatlað fólk sem hefur óskað eftir að velja persónulegan talsmann, með það að markmiði að kanna vilja fatlaðs einstaklings.
  • Viðtöl við þjónustuveitendur og aðstandendur, ef vafi leikur á um vilja fatlaðs einstaklings varðandi val á talsmanni.
  • Álit og mat á því vort vilji hins fatlaða um val á talsmanni og um verkefni honum falin, hafi komið fram. 
  • Skýrslur og rökstuddar greinargerðir um niðurstöðu viðtals / viðtala.
  • Teymisvinna með hópi sérfræðinga í málefnum barna og löglærðra fulltrúa.
  • Vinna við faglega þróun verkefnis sýslumanna vegna persónulegra talsmanna.
  • Starfsstöð verður á Akureyri, á starfsstöð Sýslumannsins á Norðurlandi eystra.
  • Starfinu fylgja umtalsverð ferðalög á starfsstöðvar sýslumanna. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf til starfsréttinda sem þroskaþjálfi. 
  • Starfsreynsla af þjónustu við fatlað fólk er kostur.
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna undir álagi.
  • Að hafa unnið að lágmarki í tvö ár við meðferð mála þar sem reynir beint á hagsmuni fatlaðs fólks. 
  • Haldgóð þekking á ákvæðum laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk og þeim helstu álitaefnum sem reynir á við túlkun þeirra.
  • Færni til að geta unnið sjálfstætt sem og í hópi með skipulögðum og öguðum vinnubrögðum.
  • Færni í mæltu og rituðu máli á íslensku og ensku. 
  • Færni í samskiptum með fjölbreyttum samskiptaleiðum.
  • Kostur að starfsmaður geti einnig unnið að sáttameðferð og verkefnum sérfræðings í málefnum barna samkvæmt barnalögum.
Advertisement published7. March 2025
Application deadline28. March 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Social workerPathCreated with Sketch.PsychologistPathCreated with Sketch.Developmental counselor
Work environment
Professions
Job Tags