Arion banki
Arion banki
Arion banki

Þjónustumiðja trygginga leitar að liðsauka

Arion banki leitar að liðauka til að ganga til liðs við öflugt teymi þjónusturáðgjafa í þjónustumiðju trygginga.

Í teyminu starfa öflugir einstaklingar sem veita úrvals þjónustu og ráðgjöf á sviði trygginga til viðskiptavina Arion samstæðunnar. Það þarf ekki að vera reynslubolti í faginu en það skiptir okkur máli að starfsfólkið okkar búi yfir frumkvæði, jákvæðni og áhuga á að læra nýja hluti.

Við leitum að aðilum til starfa á þjónustuskrifstofum okkar um allt land.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Persónuleg ráðgjöf um tryggingar til einstaklinga og smærri fyrirtækja á þjónustuskrifstofum okkar, í síma, netspjalli eða tölvupósti
  • Daglegar fyrirspurnir um tryggingar
  • Aðstoð við tjónstilkynningar og upplýsingagjöf í tengslum við tjón
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun eða reynsla
  • Framúrskarandi þjónustulund og söludrifni
  • Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Jákvætt og uppbyggilegt viðhorf
  • Reynsla af störfum í tryggingaþjónustu er kostur 
Advertisement published20. June 2025
Application deadline30. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Bíldshöfði 20, 110 Reykjavík
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Austurvegur 10, 800 Selfoss
Krossmói 4, 260 Reykjanesbær
Type of work
Professions
Job Tags