Héðinshurðir ehf
Héðinshurðir ehf
Héðinshurðir ehf

Þjónustumaður – uppsetningar og þjónusta

Vegna aukinna verkefna leitum við að öflugum og ábyrgum þjónustumanni til framtíðarstarfa við uppsetningar, viðhald og þjónustu á bílskúrshurðum, iðnaðarhurðum og gluggalausnum.

Um er að ræða fjölbreytt og sjálfstætt starf sem fer að mestu fram á vettvangi hjá viðskiptavinum. Þú vinnur náið með reyndu teymi og færð góða þjálfun og stuðning við innleiðingu í starfið.

Hjá Héðinshurðum leggjum við áherslu á fagmennsku, traust og góða þjónustu – bæði gagnvart viðskiptavinum og hvert öðru.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppsetningar á bílskúrshurðum, iðnaðarhurðum og gluggum
  • Viðgerðir, viðhald og þjónusta á hurðum og tengdum búnaði
  • Samskipti og þjónusta við viðskiptavini á vettvangi
  • Ýmis almenn þjónustu- og uppsetningarverk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnaðarmenntun eða sambærileg reynsla er æskileg
  • Bílpróf (B) er skilyrði
  • Sjálfstæð, ábyrg og lausnamiðuð vinnubrögð
  • Jákvætt viðmót og góð þjónustulund
  • Góð kunnátta í íslensku og/eða ensku
  • Áhugi á tæknilegum lausnum og verklegri vinnu
Fríðindi í starfi
  • Samkeppnishæf laun
  • Þjálfun og stuðning frá reynslumiklum sérfræðingum
  • Gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs
  • Matarstyrk
  • Vinnufatnað og vinnusíma
  • Frábær starfsandi og sterk liðsheild
Advertisement published17. April 2026
Application deadline10. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Íshella 10, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags