Tæki.is
Tæki.is

Sumarstarfsmaður óskast – fjölbreytt og líflegt starf

Um er að ræða fjölbreytt og líflegt sumarstarf þar sem unnið er bæði utandyra og inni við undirbúning og umsjón tækja.

Starfið felur í sér að halda útiplani snyrtilegu og skipulögðu, sjá um þrif og einfalt viðhald á vélum, undirbúa tæki til útleigu og aðstoða við dagleg verkefni í rekstri. Einnig felst í starfinu að taka á móti og afhenda tæki til viðskiptavina og aðstoða bílstjóra eftir þörfum.

Þetta er virkt starf sem hentar vel einstaklingi sem vill vera á ferðinni, taka til hendinni og vinna í góðu teymi þar sem hlutirnir ganga hratt fyrir sig.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Halda útiplani snyrtilegu, skipulögðu og öruggu
  • Þrífa vélar og tæki reglulega
  • Undirbúa vélar og búnað til útleigu (yfirferð, einföld athugun o.fl.)
  • Taka á móti og afhenda tæki til viðskiptavina
  • Aðstoða bílstjóra við hleðslu, losun og önnur verkefni
  • Fylgjast með ástandi tækja og láta vita ef eitthvað þarfnast viðgerðar
  • Sinna öðrum tilfallandi verkefnum tengdum daglegum rekstri
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Dugnaður, stundvísi og jákvætt viðmót
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og góð skipulagshæfni
  • Góð þjónustulund og hæfni í samskiptum
  • Áhugi á vélum og verklegum störfum (kostur)
  • Íslensku- eða enskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur heitur matur í hádeginu
  • Fjölbreytt og líflegt starfsumhverfi
  • Góð aðstaða og vinnuaðbúnaður
  • Tækifæri til að læra á fjölbreytt tæki og búnað
  • Góð starfsreynsla sem nýtist til framtíðar
  • Möguleiki á áframhaldandi starfi fyrir réttan aðila
Vinnutími

Alla virka daga frá 8 til 16

Advertisement published29. April 2026
Application deadline10. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Norðurhella 5, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags