

Þjónustulipur bílstjóri óskast til aksturs fyrir fatlaða og eldri borgara
Bílstjórar óskast
Teitur Jónasson ehf. leitar að ábyrgum og þjónustuliprum bílstjóra til starfa við akstur fatlaðra og eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu.
Starfið hentar einstaklingi sem hefur gaman af samskiptum við fólk, sýnir þolinmæði og ber virðingu fyrir þörfum annarra. Hjá mörgum farþegum skiptir bílstjórinn miklu máli í daglegu lífi og því leitum við að aðila sem vill taka þátt í að veita örugga og vinalega þjónustu.
Um er að ræða fullt starf í traustu fyrirtæki með góðan hóp starfsmanna og fjölbreytt verkefni.
Starfið felst í reglubundnum ferðum um höfuðborgarsvæðið sem þó eiga flestar uppruna í Kópavogi eða Hafnarfirði.
- Akstur farþega samkvæmt daglegri akstursáætlun sem tekur breytingum eftir þörfum notenda þjónustunnar.
- Aðstoð við farþega eftir þörfum.
- Örugg og fagleg umgengni um bifreið.
- Samskipti við farþega, aðstandendur og þjónustuaðila.
- Virðing fyrir trúnaði og þjónustusjónarmiðum.
- D ökuréttindi og gild 95 starfsréttindamerking.
- Góð íslenskukunnátta.
- Hreint sakavottorð.
- Áreiðanleiki og stundvísi.
- Góð framkoma og jákvæð samskiptahæfni.
- Þolinmæði og hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi farþega.
- Reynsla af þjónustustörfum er kostur.
- Reynsla af akstri eða vinnu með fötluðum og eldri borgurum er kostur.
Við leitum ekki aðeins að góðum ökumanni heldur einstaklingi sem hefur ánægju af samskiptum við fólk og skilur mikilvægi þess að mæta farþegum af virðingu, hlýju og þolinmæði. Margir farþegar okkar nýta þjónustuna daglega og meta stöðugleika og góða þjónustu.
Icelandic
English










