Aðföng
Aðföng
Aðföng

Þjónustufulltrúi í vöruhúsi

Við óskum eftir að ráða öflugan þjónustufulltrúa í vöruhús Aðfanga.

Um er að ræða fullt starf og er vinnutími frá kl. 7.30 - 15.30 alla virka daga.

Aðföng er innkaupa- og dreifingarmiðstöð á smásölu- og stórnotendamarkaði. Starfsemi fyrirtækisins felst í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir verslanir Bónus, Hagkaups, Olís og Stórkaups.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Starfsmaður ber ábyrgð á samskiptum við verslanir.
  • Sér um sölupantanir, vöruskil og almennar fyrirspurnir.
  • Samþykkir og hafnar skilum frá verslunum.
  • Sér um pantanir, s.s á vinnufatnaði fyrir starfsfólk.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Jákvætt viðmót og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Íslensku- og enskukunnátta skilyrði.

Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember n.k.

Advertisement published9. November 2026
Application deadline23. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Skútuvogur 7, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags