Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Þjónustufulltrúi í kærumóttöku LRH

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir drífandi og metnaðarfullum starfsmanni í stöðu þjónustufulltrúa í kærumóttöku. Um er að ræða spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf í þjónustudeild sem heyrir undir stjórnsýslu- og þjónustusvið embættisins.

Þjónustudeild sinnir stoð- og þjónustuhlutverkum fyrir bæði almenning og aðra hluta lögreglu. Deildin starfrækir m.a. ritaraþjónustu, skýrsluþjónustu, sektarþjónustu, þjónustuborð og munavörslu. Deildin hefur nýlega flutt í nýtt sameinað rými sem hefur skapað líflegt vinnuumhverfi þar sem teymisandi er í forgrunni. Jafnframt er verið að innleiða nýtt þjónustukerfi og kortleggja þjónustuferla með einföldun og skilvirkni að leiðarljósi.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 450 á fjórum megin starfsstöðvum.

Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka kæra, ábendinga og erinda frá almenningi, bæði í síma og á stafrænu formi.

  • Skráning og flokkun mála í þjónustukerfi og önnur kerfi embættisins

  • Upplýsingamiðlun og leiðbeiningar til borgara um stöðu mála og næstu skref

  • Eftirfylgni við erindi og samskipti við kærendur til að tryggja góða þjónustuupplifun

  • Samstarf við rannsókn og önnur svið embættisins við flokkun, afhendingu og frágang mála.

  • Þátttaka í umbóta- og þróunarverkefnum tengdum þjónustuferlum og stafrænni þróun deildarinnar

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða önnur menntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af þjónustu-, móttöku- eða sambærilegu starfi er kostur

  • Reynsla af umbótavinnu er kostur.

  • Reynsla af beiðna- eða þjónustukerfum (s.s. Zendesk, Salesforce eða sambærilegum) er kostur

  • Þekking á starfsemi lögreglu og/eða opinberri stjórnsýslu er kostur

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund

  • Mikið frumkvæði, sveigjanleiki og gott álagsþol

  • Skipulögð, vönduð og nákvæm vinnubrögð

  • Góð almenn tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika og færni.

Advertisement published31. March 2026
Application deadline10. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hverfisgata 113-115 115R, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags