Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

Þjónustufulltrúi á fullnustu- og skiptasviði

Þjónustufulltrúi á fullnustu- og skiptasviði sinnir fjölbreyttum verkefnum á málaflokkum sviðsins. Verkefni varða lög sem gilda um málaflokkana, s.s. fjárnám, nauðungarsölur, útburðar- og innsetningargerðir, kyrrsetningar, lögbönn, löggeymslur og skipti á dánarbúum. Þjónustufulltrúi ber ábyrgð á að þjónusta viðskiptavini, taka á móti, afgreiða og skrá beiðnir og gögn og leysa farsællega úr verkefnum. Þjónustufulltrúi skal vinna að faglegri afgreiðslu mála samkvæmt lögbundnum verkferlum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Meginverkefni er á sviði fullnustugerða en sinnir verkefnum annarra faghópa eftir þörfum
  • Upplýsingagjöf, leiðbeiningar og samskipti við viðskiptavini.
  • Skráning mála, umsýsla, bakvinnsla og eftirfylgni.
  • Undirbúningur fyrir fyrirtökur, móttaka og skráning afturkallana og frestana.
  • Úrlausn og eftirfylgni mála í samráði við fulltrúa.
  • Fylgd með fulltrúa í fullnustugerðum.
  • Frágangur gagna, skönnun og skjalavarsla.
  • Sinnir öðrum verkefnum, þvert á embættið, að beiðni yfirmanns. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf skilyrði, háskólapróf kostur
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Geta til að takast á við áskoranir með jákvæðu viðhorfi
  • Vilji til að þróa eigin færni í takt við þróun starfsins
  • Hæfni til að miðla upplýsingum 
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæði í starfi
  • Nákvæmni og traust vinnubrögð
  • Álagsþol og þrautseigja
  • Góð tölvukunnátta
  • Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Advertisement published15. May 2025
Application deadline30. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Hlíðasmári 1, 201 Kópavogur
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags