
Lyfjaver
Lyfjaver er leiðandi í lágu lyfjaverði og hefur síðan 2005 oftast mælst með lægsta verðið í verðkönnunum ASÍ og fleiri aðila. Með öflugum samhliða innflutningi lyfja og með því að nota ávallt nýjustu og bestu tækni hefur okkur tekist að standa vörð um lágt lyfjaverð til neytenda. Það er stefna Lyfjavers að bjóða viðskiptavinum sínum ávallt upp á ódýrustu lyfin á markaðnum á hverjum tíma.
Auk apóteksins á Suðurlandsbraut 22 rekur Lyfjaver heilsuvöruverslunina Heilsuver sem býður upp á mikið úrval af vítamín-og bætiefnum, vegan vörum, ilmkjarnaolíum, hreinlætisvörum, matvörum og öðrum heilsutengdum vörum. Lyfjaver rekur einnig heildverslun sem selur lyf til aðila sem heimild hafa til að versla lyf í heildsölu.
Hjá Lyfjaveri starfar stór og góður hópur reynslumikilla starfsmanna í fjölbreyttum störfum. Fjöldi lyfjafræðinga og lyfjatækna starfar hjá fyrirtækinu ásamt mörgum sérþjálfuðum starfsmönnum sem sinna verkefnum í lyfjaskömmtun, apóteki, Heilsuveri og heildsölu.
Lyfjaver er sjálfstætt fyrirtæki í samkeppni við önnur apótek og heilsubúðir á markaðnum og er ekki hluti af keðju lyfjaverslana.

Þjónustufulltrúi
Lyfjaver ehf. óskar eftir að ráða þjónustufulltrúa til framtíðarstarfa hjá fyrirtækinu.
Starfið er í opnu rými með fjölda samstarfsmanna. Starf þjónustufulltrúa styður við starf sérfræðinga og felur í sér móttöku og svörun erinda eða að koma þeim í réttan farveg, ásamt almennum skrifstofustörfum.
Vinnutími er frá u.þ.b. kl. 8:30 til 16:30. Lyfjaver býður upp á góða vinnuaðstöðu og niðurgreiðir máltíðir í hádegi. Í boði er fjölbreytt starf í góðum starfsmannahópi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Símsvörun og svörun fyrirspurna í tölvupósti ásamt því að útdeila málum til réttra aðila innan fyrirtækisins
- Gagnaundirbúningur- og frágangur tengdur lyfjaskömmtun og lyfjaafgreiðslu
- Almenn skrifstofustörf og aðstoð
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar og þjónustulund
- Góð almenn tölvukunnátta
- Jákvætt viðhorf og sjálfstæð vinnubrögð
- Þekking á starfi apóteka er kostur
- Góð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð
Advertisement published20. July 2026
Application deadline4. August 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
General computer knowledgeClean criminal recordPhone communicationEmail communicationCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Verkefnastjóri skrifstofu þjónustumiðstöðvar
Rangárþing Ytra

Þjónustufulltrúi - Reykjavík
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Finnst þér gaman að greina gögn og vinna með fólki?
Dómsmálaráðuneytið

Sölufulltrúi ELKO Granda-helgarstarf
ELKO

Söluráðgjafi með tæknilega innsýn óskast - Frumkvæði og þjónustulund
NTI ehf. (NTI á Íslandi)

Þjónustufulltrúi - Móttaka
Icetransport

Tax Free operations executive
Planet Payment Iceland ehf.

Internal communications and culture manager
Alvotech hf

Bókari á fjármálasviði
Avis og Budget

Starfsmaður fasteignaumsjónar
Listaháskóli Íslands

Þjónustufulltrúi í söludeild Steinprýði - Fullt starf
Steinprýði ehf

Öryggisvörður á Akranes í kvöld- og helgarvinnu
Öryggismiðstöðin