
Stoð
Stoð er rótgróið þjónustufyrirtæki á heilbrigðissviði, stofnað 1982. Markmið Stoðar er að bæta lífsgæði með því að bjóða upp á heildarlausnir fyrir einstaklinga með fötlun, áverka og sjúkdóma og þá sem vilja fyrirbyggja heilsufarsvandamál. Auk þess að þjónusta og veita lausnir fyrir heilbrigðisstofnanir. Innan Stoðar starfar samhentur hópur fagfólks á heilbrigðissviði sem vinnur í sameiningu að því að finna bestu lausnirnar fyrir viðskiptavini fyrirtækisins.
Þjónustufulltrúi
Stoð leitar að áhugasömum og viðmótsgóðum einstaklingi til að ganga til liðs við þjónustudeild félagsins.
Viðkomandi kemur til með að sinna margvíslegri þjónustu við viðskiptavini og samstarfsaðila Stoðar, meðal annars móttöku viðskiptavina, söluráðgjöf og úrlausn erinda sem berast í gegnum síma eða vef.
Viðkomandi þarf að vera lausnarmiðaður, hafa góða samskiptahæfni og faglega innsýn sem nýtist í ráðgjöf á heilbrigðistengdum vörum.
Við leitum að einstaklingi með jákvætt lífsviðhorf og áhuga fyrir teymisvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka viðskiptavina og ráðgjöf um vörur og heilbrigðistengdar lausnir
- Upplýsingagjöf um vörur og þjónustu Stoðar
- Samvinna við starfsfólk annarra deilda um úrlausn viðfangsefna
- Úrlausn erinda sem berast í gegnum síma eða vef Stoðar
- Ýmis tilfallandi verkefni svo sem tiltekt pantana úr vefverslun, umsjón með tímabókunum, framstilling, vörufrágangur og fleira
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, sjúkraliðamenntun eða sambærilegt er kostur
- Reynsla af störfum innan heilbrigðisgeirans og/eða áhugi á heilbrigðistengdri þjónustu
- Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
- Frumkvæði, lausnarmiðuð hugsun og jákvætt lífsviðhorf
- Skipulagshæfileikar og faglegur metnaður
- Góð almenn tölvukunnátta
Advertisement published7. July 2025
Application deadline14. July 2025
Language skills

Required
Location
Dragháls 14-16 14R, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PositivityTeam workCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Aðstoðarmaður tannlæknis
Tannir tannlæknastofa ehf

Þjónustufulltrúi í langtímaleigudeild í Reykjavík
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Sölu- og þjónustufulltrúi - Þjónustuver
Sýn

Þjónustufulltrúi í þjónustuveri
Eignarekstur ehf

Sölu-/Þjónustufulltrúi Kerfi Fyrirtækjaþjónusta
Kerfi Fyrirtækjaþjónusta

Þjónustufulltrúi- tímabundin ráðning
Blue Car Rental

Sjúkraliðar / sjúkraliðanemar óskast á Hraunbúðir Vestmannaeyjum
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Sérfræðingur í launavinnslu
Aðalbókarinn ehf

Þjónustufulltrúar - Dánarbú og Fullnustumál
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

Þjónustufulltrúi
Eignaumsjón hf

Akureyri - Störf á pósthúsi
Pósturinn

Sjúkraliði í sérhæfða dagþjálfun Roðasala
Kópavogsbær