Black Sand Hotel
Black Sand Hotel
Black Sand Hotel

Þjónar og Gestamóttaka

Vertu hluti af Black Sand Hotel & ÓMUR Restaurant

Black Sand Hotel og ÓMUR Restaurant leita að öflugum einstaklingum til að ganga til liðs við þjónustuteymið okkar á suðurströnd Íslands.

Við leggjum áherslu á hlýlega gestrisni, fagmennsku og vandaða upplifun þar sem þjónusta, stemning og gæði fara saman. Nú leitum við að fólki sem vill vinna í metnaðarfullu umhverfi þar sem teymisvinna, frumkvæði og jákvætt viðhorf skipta máli.

Við erum að ráða í eftirfarandi störf:

  • Þjónar
  • Barþjónar

  • Starfsfólk í Guest Experience

Öll störf eru þjónustutengd og gestamiðuð þar sem unnið er náið saman að því að skapa eftirminnilega upplifun fyrir gesti hótelsins og veitingastaðarins.

Við leitum bæði að reynslumiklu fólki og einstaklingum með metnað og áhuga á að þróast áfram í þjónustu og gestrisni.

Hæfniskröfur og eiginleikar

  • Reynsla af þjónustustörfum, veitingarekstri eða hótelstarfi er kostur

  • Sterkt vinnusiðferði og áreiðanleiki

  • Jákvætt og faglegt viðmót gagnvart gestum og samstarfsfólki

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni

  • Geta til að vinna vel undir álagi í hröðu umhverfi

  • Lausnamiðuð hugsun og yfirvegun

  • Áhugi á mat, víni, kaffi og vandaðri þjónustu

  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

  • Viðeigandi menntun er kostur


Um Black Sand Hotel & ÓMUR Restaurant

Black Sand Hotel er boutique-hótel á suðurströnd Íslands þar sem innblástur kemur frá hrárri fegurð náttúrunnar í kring. Ásamt ÓMUR Restaurant leggjum við áherslu á fágaða en hlýlega upplifun þar sem gæði, þjónusta og stemning mynda sterka heild.

Skilyrði

  • Umsækjendur þurfa að vera búsettir á Íslandi

  • Taka þarf fram hvaða starf er sótt um

  • Meðmæli þurfa að fylgja umsókn

  • Húsnæði er ekki í boði

Við hlökkum til að heyra frá fólki sem hefur ástríðu fyrir góðri þjónustu og vill verða hluti af metnaðarfullu teymi hjá Black Sand Hotel & ÓMUR Restaurant.

Advertisement published25. May 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Óseyrartangi 2, 816 Ölfus
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Bar servicesPathCreated with Sketch.WaiterPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.Non smokerPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.No tobaccoPathCreated with Sketch.Employee schedulingPathCreated with Sketch.WaiteringPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags