Tæknistjóri rafmagns
HS Veitur leita að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í starf tæknistjóra rafmagns.
Tæknistjóri rafmagns mun spila lykilhlutverk í þróun, framkvæmd og viðhaldi rafdreifikerfa fyrirtækisins. Fyrirtækið á og rekur rafmagnsveitur á Suðurnesjum, í Hafnarfirði, Garðabæ, Árborg og Vestmannaeyjum.
Tæknistjóri rafmagns tekur þátt í hönnun, þróun og stöðlun á verklagi við rekstur og uppbyggingu veitukerfa. Starfið felur m.a. í sér stefnumótun og framtíðarsýn rafdreifikerfa á hverju veitusvæði og stuðlar að hagkvæmum og öruggum rekstri veitukerfa HS Veitna.
Viðkomandi þarf að hafa góða tækniþekkingu, samskiptahæfileika og kunnáttu til að leysa fjölbreytt og krefjandi verkefni. Tæknistjóri rafmagns verður hluti af samhentu teymi tækni & nýsköpunar sem sinnir greiningum, hönnun, verkefnisstjórn og áætlunargerð veitukerfa. Starfið heyrir undir forstöðumann tækni & nýsköpunar.
Um er að ræða nýtt og fjölbreytt starf í góðu starfsumhverfi.
- Hönnun og framtíðarsýn rafdreifikerfis
- Kerfisgreiningar og áætlunargerð vegna endurnýunar og nýframkvæmda
- Innleiða nýjar tæknilausnir og verkferla til að auka hagkvæmni rafdreifikerfa
- Samskipti við viðskiptavini, sveitarfélög og hagaðila til að tryggja samræmingu í verklegum framkvæmdum
- Samskipti við verkfræðistofur og birgja
- Stuðningur og samstarf við svæðisstjóra, verkstjóra og annað starfsfólk
- Háskólapróf í rafmagns verk- eða tæknifræði
- Þekking á rafveitukerfum kostur
- Þekking á hugbúnaði tengdum stjórnbúnaði, rekstri, hermun eða hönnun veitukerfa
- Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni
- Frumkvæði, þjónustulund og sjálfstæði í starfi
- Jákvætt, uppbyggilegt og lausnamiðað viðhorf
- Gott vald á íslensku og ensku