Víking Brugghús CCEP á Íslandi
Víking Brugghús CCEP á Íslandi
Víking Brugghús CCEP á Íslandi

Sumarstörf í Víking Brugghús 2025

Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður sem hefur djúpar rætur og 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Víking Brugghús á Akureyri er mikilvægur hluti af fyrirtækinu þar sem við bruggum og framleiðum okkar gæðabjór með stolti. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.

Við erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá byrjun júní til lok ágúst.

Helstu verkefni

  • Áfylling í samræmi við áætlanir
  • Stjórnun framleiðsluvéla og eftirlit með gæðum framleiðslunnar
  • Bilanagreining í samvinnu við viðgerðarmenn
  • Þátttaka í reglubundnu viðhaldi á tækjum og vélum
  • Almenn þrif
  • Önnur tilfallandi verkefni


Hæfniskröfur

  • Reynsla af framleiðslustarfi eða verksmiðjuvélum er æskileg
  • Sjálfstæð vinnubrögð og greinandi hugsun
  • Almenn tölvukunnátta
  • Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi, heiðarleiki og áreiðanleiki
  • Íslensku- eða enskukunnátta er nauðsynleg

Fríðindi í starfi

  • Afsláttur af vörum Coca-Cola og aðrir starfsmannaafslættir
  • Mötuneyti á staðnum
  • Aðgangur að ráðgjafaþjónustu svo sem sálfræði- og félagsráðgjöf að kostnaðarlausu

Hafir þú áhuga á að starfa með okkur í sumar þá endilega sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast, því hvetjum við áhugasama um að sækja um sem fyrst. Athugið að umsækjendur þurfa ð hafa náð 18 ára aldri.

Ráðningarferlið getur tekið mislangan tíma. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.

Umsóknarfrestur er til 8. júní 2025.

Ert þú ekki viss um að þú uppfyllir hæfniskröfur en hefur brennandi áhuga? Hafðu samband við okkur ef þú ert efins. Nánari upplýsingar veita mannauðsráðgjafar okkar í gegnum netfangið [email protected] en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.

Advertisement published30. May 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Furuvellir 18, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags