Leikskólinn Garðasel
Leikskólinn Garðasel
Leikskólinn Garðasel

Sumarstarfsmenn óskast í leikskólann Garðasel.

Heilsuleikskólinn Garðasel á Akranesi auglýsir eftir starfsfólki í sumarafleysingar. Um er að ræða starf frá maí til ágúst 2026. Leikskólinn er lokaður frá 6. júlí til og með 3. ágúst. Vinnutími er eftir nánara samkomulagi.

Garðasel er Heilsuleikskóli og leggur áherslu á hreyfingu, heilsu og gæði í samskiptum. Við leitum að duglegu og áhugasömu fólki sem tilbúið er að vinna með skemmtilegum börnum. Í leikskólanum eru um 160 börn á sjö deildum.

Leikskólinn er í nýju og glæsilegu húsnæði þar sem m.a. starfsaðstaða, hljóðvist og lýsing er til fyrirmyndar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Áhugi á að starfa með börnum
  • Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leiðbeinenda eða leikskólakennara.
  • Starfið er unnið samkvæmt lögum og reglugerðum um leikskóla og í samvinnu við leikskólakennara, deildarstjóra og skólastjórnendur.
  • Taka þátt í skipulögðu starfi með börnum
  • Önnur tilfallandi verkefni sem falla til í leikskólastarfi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Jákvæðni, lipurð og góð færni í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Námskeið í skyndihjálp kostur
  • 18 ára og eldri
  • Hreint sakavottorð
Advertisement published30. March 2026
Application deadline14. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Asparskógar 25
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.No tobacco
Suitable for
Professions
Job Tags