

Sumarstarfsfólk í sundlaugar Árborgar
Sveitarfélagið Árborg leitar eftir sumarstarfsmönnum í sundlaugar Árborgar.
Tvær sundlaugar eru starfsræktar í Árborg, ein á Selfossi og önnur á Stokkseyri. Í Sundhöll Selfoss eru sundlaugar úti og inni, ásamt heitum pottum, köldum pottum, gufubaði, sauna og rennibrautum og í sundlaug Stokkseyrar er útisundlaug þrír heitir pottar og kaldur pottur. Hjá sundlaugunum starfa á annan tug starfsmanna, fimm starfsmenn á hverri vakt í Sundhöll Selfoss og tveir í sundlaug Stokkseyrar.
Laugin er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 06:30 til 21:00 og um helgar frá 08.00 til 18.00. Vinnan hefst 15 mín. fyrir opnun og lýkur 60-90 mín. eftir lokun. Unnið er á tveimur vöktum virka daga en einni vakt um helgar.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Laugarvarsla sem felst í öryggiseftirliti og þrifum við laugar bæði úti og inni.
- Baðvarsla sem einkum er fólgin í þrifum í bað- og búningsklefum auk öryggisgæslu á þeim stöðum.
- Afgreiðsla þar sem sala í laug og á ýmsum vörum fer fram, símsvörun, upplýsingagjöf, þrif og öryggiseftirlit.
- Starfsmenn fá námskeið í fyrstu hjálp, björgun og fleiru.
- Starfsfólk sundlauga verður að vera orðið 18 ára.
- Starfsmenn sem sinna laugargæslu skulu árlega standast hæfnispróf skv. III. viðauka reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
- Stundvísi, vinnusemi og samviskusemi.
- Góð samstarfshæfni og þjónustulund.
- Sundlaugar Árborgar eru reyklausir vinnustaðir.










