
Sjúkratryggingar Íslands
Sjúkratryggingar er lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi. Við tryggjum réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það markmið að leiðarljósi að vernda heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag.
Sjúkratryggingar vinna í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi þar sem rík áhersla er lögð á góðan aðbúnað starfsmanna. Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma, fjarvinnu allt að 2 daga í viku auk þess sem starfsfólk nýtur hlunninda á borð við íþróttastyrk og samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna. Stofnunin hefur undanfarin ár tekið þátt í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og er vinnuvikan 36 stundir.
Sumarstarf - Afgreiðsla umsókna um hjálpartæki (kjörið fyrir nema í sjúkraþjálfunarfræðum)
Sjúkratryggingar leita að öflugum og áhugasömum starfsmanni í sumarstarf við afgreiðslu umsókna um hjálpartæki hjá stofnuninni. Starfið er kjörið fyrir nemanda á þriðja ári í sjúkraþjálfunarfræðum sem vill öðlast innsýn í starfsemi opinberrar heilbrigðisþjónustu og taka þátt í verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á líf og sjálfstæði einstaklinga.
Sjúkratryggingar eru lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi sem tryggir réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það markmið að leiðarljósi að vernda heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirferð og afgreiðsla umsókna um hjálpartæki
- Þátttaka í mati á þörf fyrir hjálpartæki
- Samstarf við starfsfólk hjálpartækjamiðstöðvar og aðra sérfræðinga
- Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt nánara skipulagi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Nemi á þriðja ári í sjúkraþjálfunarfræðum
- Áhugi á hjálpartækjum og þjónustu við notendur
- Jákvæðni og góð samskiptahæfni
- Frumkvæði, skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Gott vald á íslenskri tungu
Advertisement published10. April 2026
Application deadline20. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík
Type of work
Skills
ProactivePositivityHuman relations
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Bókhalds - og þjónustufulltrúi
Arna

Tollmiðlari - 50% starf
Aðföng

Þjónustufulltrúi
Deluxe Iceland

Bókari/uppgjörsaðili
HSE Bókhald & Uppgjör ehf.

Sumarstarf fyrir háskólanema - lánadeild
Brú lífeyrissjóður

Almenn umsókn hjá Fagkaupum
Fagkaup ehf

Sumarstarf fyrir háskólanema - réttindasvið
Brú lífeyrissjóður

Verkefnastjóri / Project Manager
Fjárfestingafélag - Venture Capital Firm

Ferðaráðgjafi og Viðskiptaþróun í Hópadeild
Kilroy

Bókari
Ívera ehf.

Fjármála- og stjórnsýslusvið: auglýsir tímabundið afleysinga starf
Dalvíkurbyggð

Starfskraftur afgreiðslu á Akureyri
Frumherji hf