
Ívera ehf.
Ívera býður fjölbreytt úrval leiguíbúða fyrir einstaklinga og fjölskyldur á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.
Okkar sýn er að veita góða þjónustu sem einfaldar og bætir líf viðskiptavina okkar – bæði í dag og í framtíðinni

Bókari
Ívera ehf. leitar að metnaðarfullum og öflugum bókara í fullt starf til að sinna daglegum verkefnum í bókhaldi.
Leitað er að einstaklingi sem á auðvelt með mannleg samskipti og vinnur af jákvæðni og samviskusemi. Um er að ræða skemmtilegt og gefandi starf þar sem unnið er í nánu samstarfi við fjármálastjóra og fjölbreyttan hóp starfsmanna félagsins.
Hjá Íveru starfa 18 einstaklingar með fjölbreytta reynslu og þekkingu á tveimur starfsstöðvum í Kópavogi og á Ásbrú. Félagið er með um 1.700 íbúðir í útleigu víðs vegar um landið og er í örum vexti, með metnaðarfull áform um áframhaldandi uppbyggingu á íbúðamarkaði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegar bókanir og afstemmingar
- Umsjón með lánardrottna- og viðskiptamannabókhaldi
- Undirbúningur bókhalds fyrir mánaðarleg uppgjör
- Ábyrgð á umsóknum um endurgreiðslu VSK af vinnu
- Önnur tengd og tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð þekking á bókhaldi
- Viðurkenndur bókari er kostur
- Reynsla á Dynamics 365 Business Central (BC) er kostur
- Góð færni í Excel og almenn tölvukunnátta
- Geta til að vinna sjálfstætt og bera ábyrgð á eigin verkefnum
- Frumkvæði og lausnarmiðað viðhorf
- Áhugi á að nýta tækni til að einfalda og bæta ferla
Advertisement published9. April 2026
Application deadline19. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
ReconciliationHuman relationsMicrosoft Dynamics 365 Business CentralPrecisionConscientiousIndependence
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Sumarstarf fyrir háskólanema - lánadeild
Brú lífeyrissjóður

Almenn umsókn hjá Fagkaupum
Fagkaup ehf

Sumarstarf fyrir háskólanema - réttindasvið
Brú lífeyrissjóður

Innheimtufulltrúi
Sveitarfélagið Skagafjörður

Bókari
Intellecta

Senior Business Controller
JBT Marel

Bókari/bókhaldsfulltrúi óskast til starfa
Heilsuvernd

Starfskraftur afgreiðslu á Akureyri
Frumherji hf

Tekjustjóri Okkar bílaleigu ehf./Enterprise
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Fulltrúi í launadeild
Íslandshótel

Viðskiptastjóri
Torcargo

Leiðandi sérfræðingur í fjármálum
Hagstofa Íslands