
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.500 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Kjörorð Fjarðabyggðar er: Þú ert á góðum stað.
Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.

Stuðningur við fatlað ungmenni
Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar auglýsir eftir áhugasömum og metnaðarfullum starfsmanniu til að vera stuðningsaðili fyrir ungmenni með miklar stuðningsþarfir. Markmið stuðningsins er að styðja einstaklingana í 2-4 tíma á dag eftir klukkan 14:00 alla virka daga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfsmaður sér um umönnun þjónustunotenda vegna líkamlegra, andlegra og félagslegra þarfa eftir því sem við á.
- Veitir þjónustunotendum persónulegan stuðning við athafnir daglegs lífs sem sniðinn er að þörfum, aldri, óskum og væntingum hvers og eins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðkomandi þarf að vera orðinn 18 ára
- Reynsla af starfi með fötluðum börnum og ungmennum er æskileg
- Góðir samskiptahæfileikar
- Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki
- Bílpróf og bíll til umráða er æskilegt
Advertisement published8. July 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
PolishRequired
IcelandicRequired
Type of work
Skills
ReliabilityProactiveClean criminal recordDriver's licenceConscientiousNeatnessCare (children/elderly/disabled)Customer servicePatience
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Fjölbreytt og gefandi NPA helgarstarf á Selfossi / Rewarding weekend NPA role in Selfoss
NPA miðstöðin

Aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Aðstoðarmaður, NPA, óskast í tímabundið ca. 33% hlutastarf
NPA miðstöðin

Fjölbreytt og gefandi NPA hlutastarf á Selfossi / Rewarding part-time NPA role in Selfoss
NPA miðstöðin

Heimastuðningur Reykjavíkur Norðvestur
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Óska eftir konum ì 50% - 100% vaktavinnu
NPA miðstöðin

Aðstoðarkonur óskast í NPA-starf á kvöld- og helgarvaktir
NPA miðstöðin

Endurhæfingardeild á Eir
Eir hjúkrunarheimili

Umönnunarstörf - Sóltúni í Reykjavík - Dagvinna
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Umönnun framtíðarstarf - Boðaþing
Hrafnista

Umönnun framtíðarstarf - Ísafold
Hrafnista

Persónuleg aðstoð / Personal assistant
NPA miðstöð