Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.
Stuðningsfulltrúi
Óskað er eftir að ráða stuðningsfulltrúa í sértækt húsnæðisúrræði fyrir fötluð börn í Móvaði.
Okkur vantar nýja og skemmtilega samstarfsfélaga í frábæran hóp starfsmanna á helgarvaktir og einnig til leysa af í sumar.
Markmið þjónustunnar er að mæta þörfum barnanna og fjölskyldum þeirra, á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt.
Sólarhringsþjónusta er veitt á heimilinu, allt árið um kring.
Unnið er á dag-, kvöld-, nætur- og helgarvöktum og viðkomandi þarf að geta unnið allar vaktir.
Starfshlutfall er eftir samkomulagi. Krafa gerð um að geta unnið um helgar.
Möguleiki á tímabundinni ráðningu og ótímabundinni.
Kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Vegna sérstakra aðstæðna er eingöngu óskað eftir kvenkyns umsækjendum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umönnun, stuðningur, hvatning og aðstoð við þjónustunotendur til félagslegrar virkni og sjálfshjálpar.
- Þátttaka í teymisvinnu.
- Stuðla að góðum samskiptum við aðstandendur íbúa.
- Þátttaka í þróunarstarfi undir stjórn teymisstjóra og forstöðumanns.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af starfi með fötluðum börnum og ungmennum æskileg.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
- Frumkvæði, skipulagshæfni, áreiðanleiki og sjálfstæð í vinnubrögð.
- Íslenskukunnátta B1 eða hærra (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Advertisement created22. April 2024
Application deadline15. May 2024
Location
Móvað 9, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (9)
Starfsfólk til starfa við heimastuðning
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunarfræðingur í Þorraseli
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Starfsmaður í viðbragðsteymi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sjúkraliði
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Félagsráðgjafi í Austurmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Teymisstjóri í endurhæfingarteymi – Austurmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Deildarstjóri í íbúðakjarna í Einarsnesi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Flokkstjóri í heimaþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sumarstarf: stuðningsfulltrúi óskast á besta stað í bænum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Similar jobs (12)
Aðstoðarkona óskast í hlutastarf á morgunvöktum
NPA miðstöðin
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk
Fjarðabyggð
Næturvaktir á heimili fyrir fatlað barn - sumarafleysing
Fjarðabyggð
Ævintýragjarnt aðstoðarfólk óskast í hlutastarf
NPA miðstöðin
Kvíslarskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa
Kvíslarskóli
Verkefnastjóri fjölmenntar og færnieflingar fatlaðra
Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
Helgarstarf í umönnun í sumar - Ísafold
Hrafnista
Ertu til í flippað hlutastarf með afleysingarívafi?
NPA miðstöðin
Starfsfólk til starfa við heimastuðning
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Lágafellsskóli óskar eftir stuðningsfulltrúum
Lágafellsskóli
Reyndar aðstoðarkonur óskast
NPA miðstöðin
Óska eftir hressum húmoristum í teymið mitt!
NPA miðstöðin