Starfsmaður í sviðsdeild Borgarleikhúss
Starfsfólk sviðsdeildar Borgarleikhússins vinnur að undirbúningi og uppsetningu sviðsmynda, viðhaldi þeirra og skiptingum á milli leiksýninga. Jafnframt sinnir viðkomandi starfsmaður almennu viðhaldi á tæknibúnaði og leikmyndum.
• Undirbúningur og uppsetning sviðsmynda fyrir æfingar og sýningar, skiptingar og viðhald sviðsmynda á æfinga- og sýningatíma, auk frágagangs á sviðsmyndum að æfingum loknum
• Almenn smíðavinna, járn- og tréverk.
• Útfærsla á ýmsum lausnum er snúa að leikhústækni og óskum listrænna stjórnenda.
• Að öll vinna sem sem snýr að leiksviðum leikhússins og tæknilegum útfærslum sé klár fyrir hverja sýningu og í samræmi við óskir listrænna stjórnenda
• Að öryggismálum og umgengni á leiksviðum leikhússins sé sinnt af kostgæfni
• Að öll öll umgjörð og útlit á leiksviðum Borgarleikhússins sé til fyrirmyndar
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
• Iðnmenntun og/eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi er skilyrði