Iðan fræðslusetur ehf
Iðan fræðslusetur ehf
Iðan fræðslusetur ehf

Starfsmaður í móttöku

Iðan fræðslusetur leitar að jákvæðum, þjónustulunduðum og skipulögðum einstaklingum til starfa í móttöku þar sem námskeiðahald fer fram. Starfið felur í sér móttöku nemenda og leiðbeinenda á námskeiðum sem og að sjá um kaffistofu nemenda. Starfið getur einnig falið í sér svörun á fyrirspurnum í tölvupósti og í síma eftir atvikum.

Um er að ræða tímavinnu og möguleiki er á breytilegu starfshlutfalli og vinnutíma, þ.e. á daginn, kvöldin og um helgar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka og þjónusta við nemendur og leiðbeinendur 

  • Umsjón með kaffi- og matarveitingum við námskeiðahald 

  • Frágangur í eldhúsi og sameiginlegum rýmum 

  • Undirbúningur og frágangur kennslurýma eftir þörfum 

  • Aðstoð við leiðbeinendur, m.a. vegna einfaldra tæknimála 

  • Almenn tilfallandi verkefni tengd starfseminni 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund og hæfni í samskiptum 

  • Snyrtimennska og skipulögð vinnubrögð 

  • Sjálfstæði í starfi og frumkvæði 

  • Hæfni til að vinna í fjölbreyttu og hröðu starfsumhverfi 

  • Grunnþekking á tölvum og einföldum tæknilausnum 

  • Gott vald á íslensku og ensku 

Við leitum að einstaklingi sem
  • Hefur ánægju af því að vinna með fólki og veita góða þjónustu 

  • Er jákvæður, lausnamiðaður og sveigjanlegur 

  • Er stundvís og áreiðanlegur 

  • Getur brugðist hratt við þegar upp koma ófyrirséðar aðstæður 

Advertisement published2. July 2026
Application deadline10. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags