Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á skammtímadvöl - Hnotuberg

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan og áhugasaman starfsmann á skammtímadvöl fyrir fötluð ungmenn, staðsett í Setbergshverfi.

Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 80%, og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar. Ráðning frá og með 1. maí 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir áætlunum og verklagsreglum
  • Leitast við að auka lífsgæði og sjálfstæði fatlaðs fólks og stuðla að valdeflingu þeirra
  • Almenn heimilisstörf
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi í síma 565-2545 netfang: [email protected]

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2026

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published19. February 2026
Application deadline5. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hnotuberg 19, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags