

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í 60% starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Steinahlíð.
Fjölbreytt og spennandi starf þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að þjónustunotendum líði sem best.
Um er að ræða 60% starf og verður viðkomandi að geta unnið allar vaktir, morgunvaktir, kvöldvaktir, næturvaktir og aðra hvora helgi. Okkur vantar starfsmann sem hafið getur störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja þjónustunotendur til þátttöku í samfélaginu
- Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
- Almenn heimilisstörf
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og samviskusemi
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Framtakssemi og samviskusemi
- Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
- Líkamleg geta til þess að sinna krefjandi verkefnum á vinnustað
Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og vera með hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, Forstöðuþroskaþjálfi í síma: 565-5344, netfang: [email protected]
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2025
Með umsókn þarf að fylgja greinargóð ferilskrá .
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.



































