

Starf á göngudeild augnsjúkdóma
Við leitum að skipulögðum og samviskusömum einstaklingi til starfa á göngudeild augnsjúkdóma. Um er að ræða fjölbreytt starf sem felur m.a. í sér umsjón með lager og verkfærum deildarinnar ásamt öðrum verkefnum sem styðja við daglega starfsemi.
Göngudeildin er miðstöð augnsjúkdóma í landinu og skiptist í göngudeild, dagdeild og skurðstofur. Í boði er góð einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reynds starfsfólk. Starfshlutfall er 80% og er starfið laust 10. ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Í boði er:
-
Fjölbreytt, tæknilegt og líflegt starf
-
Einstaklingsmiðuð starfsþjálfun
-
Starfsþróun með skipulagðri fræðslu
-
Sérhæft starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og þverfaglegt samstarf
-
Dagvinna, allt að 80% starfshlutfall.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Umsjón með verkfærum deildarinnar
- Umsjón með lager deildar og vörupantanir
- Umsjón með daglegu skipulagi, vörumóttöku og umgengni á lager
- Sótthreinsun og pökkun sérhæfðra áhalda
- Samskipti og samvinna við birgðastöð og birgja
- Vinna í tölvukerfum
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra
- Stúdentspróf eða annað nám og/ eða reynsla sem nýtist í starfi
- Faglegur metnaður
- Góð tölvukunnátta
- Góð samskiptahæfni, jákvætt viðmót, lipurð og sveigjanleiki
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Stundvísi
- Hæfni til að vinna í teymi
- Góð íslenskukunnátta er áskilin
Icelandic














































