Salaskóli
Salaskóli
Salaskóli

Stærðfræðikennari á unglingastig í Salaskóla

Við leitum að góðum stærðfræðikennara í okkar frábæra starfslið í Salaskóla.

Í skólanum eru góður starfsandi og gott starfsumhverfi. Kennarar vinna saman í teymisvinnu við undirbúning og skipulagningu náms og kennslu.

Skólaþróun hefur verið ríkur þáttur í skólastarfinu og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín og að þeim líði vel í skólanum. Skólinn var stofnaður árið 2001 og á yfirstandandi skólaári eru 500 nemendur í 1.-10. bekk. Við skólann starfa um 100 starfsmenn.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umsjónarkennari í 10. bekk í þriggja manna kennarateymi og stærðfræðikennsla í 8.-10. bekk. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla. Til greina kemur að ráða 5. árs nema.
  • Framhaldsmenntun í stærðfræði og/eða reynsla af kennslu í stærðfræði á unglingstigi æskileg.
  • Frumkvæði og skapandi hugsun við þróun verkefna og aðlögun að ólíkum nemendahópum.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, faglegur metnaður og sveigjanleiki í að takast á við fjölbreyttar aðstæður.
  • Sterk samskiptahæfni og færni í að mynda jákvæð tengsl við nemendur og samstarfsfólk.
  • Þolinmæði, umburðarlyndi og víðsýni sem nýtist gagnvart fjölbreyttum nemendahópi og í teymisvinnu.
  • Góð teymisfærni og áhugi á að vinna þverfaglega með öðrum kennurum og starfsfólki skólans með velferð nemenda að leiðarljósi.
  • Skipulagshæfni, ábyrgð og stundvísi.
  • Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans og taka virkan þátt í teymiskennslu og samstarfi innan skólasamfélagsins.
  • Geta til að kenna á íslensku og eiga samskipti við nemendur og samstarfsfólk á íslensku.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar sveitarfélagsins.

Advertisement published22. December 2025
Application deadline4. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Versalir 5, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Patience
Suitable for
Professions
Job Tags