Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Stærðfræði og náttúrufræðikennari á unglingastigi - Víðistaðaskóli

Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða fagkennara í stærðfræði og náttúrufræði

Víðistaðaskóli var stofnaður árið 1970, skólinn er heildstæður skóli með 1. – 10. bekk og eru nemendur um 480. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing - Vinátta. Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góðan námsárangur. Unnið er að þróun teymiskennslu og notkunar spjalda í skólastarfi.

Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Víðistaðaskóli er heilsueflandi grunnskóli og starfar í anda grænfánans þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu.

Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal allra sem í skólanum starfa.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu náttúrufræði og stærðfræði á unglingastigi
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri, í síma 6645890, hronn@vidistadaskoli.is eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, valaj@vidistadaskoli.is

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2024

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement created17. April 2024
Application deadline2. May 2024
Location
Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags