
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.500 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Kjörorð Fjarðabyggðar er: Þú ert á góðum stað.
Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.

Staða sjúkraliða við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Um er að ræða 100% starf frá 5. janúar 2026 sem heyrir bæði undir skólann og frístund. Vinnutími er frá kl. 7:55 til 16:15. Í skólanum eru rúmlega 200 börn í 1. - 10. bekk. Leitað er að einstaklingi sem er reiðubúinn til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.
Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.grunnrey.is
Reyðarfjörður er í hjarta Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir.
- Vinnur eftir áætlun sem er útbúin vegna sérþarfa nemanda.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs undir stjórn yfirþroskaþjálfa og deildarstjóra sérkennslu.
- Hefur hagsmuni nemenda að leiðarljósi, sýnir hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við bekkjarkennara og foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjúkraliðamenntun er skilyrði.
- Reynsla af starfi með fötluðum börnum er æskileg.
- Góð tök á íslensku máli.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Ábyrgð í starfi og stundvísi.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
Advertisement published20. October 2025
Application deadline10. November 2025
Language skills
IcelandicRequired
Location
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (5)
Similar jobs (12)

Umönnun framtíðarstarf - Boðaþing
Hrafnista

Sjúkraliði á heila-, tauga- og öldrunarbæklunarskurðdeild
Landspítali

Sjúkraliði í heimahjúkrun
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri í stuðningsþjónustu
Hafnarfjarðarbær

Umönnun framtíðarstarf - Hraunvangur
Hrafnista

Starfsfólk á Heimili fyrir börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Tanntæknir eða aðstoðarmaður tannlæknis
Sterling ehf

Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali

Sjúkraliði á hjartadeild
Landspítali

NPA aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - helgarvinna á laugardögum í Ylju
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Aðstoðarkona óskast til starfa
Heiða slf