
Samhentir
Samhentir Kassagerð ehf var stofnað árið 1996. Félagið hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun, frá því að vera lítið sprotafyrirtæki í stærsta umbúðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Lykillinn að framgangi fyrirtækisins liggur í góðum tengslum við viðskipavini og birgja félagsins, vönduðu og reynslumiklu starfsfólki ásamt áherslu á gæði og nýjungar.

Söluráðgjafi véladeildar
Samhentir leita að metnaðarfullum aðila í sölu- og ráðgjafastarf í véladeild félagsins. Samhentir leita að metnaðarfullri sölumanneskju í sölu- og ráðgjafastarf í véladeild félagsins. Véladeild Samhentra sérhæfir sig í lausnum tengdum sjálfvirknivæðingu, pökkunarlínum og umbúðalausnum fyrir fyrirtæki í iðnaði og framleiðslu.
Starfið er fjölbreytt og tæknilegt og felur í sér náið samstarf við viðskiptavini, tæknisérfræðinga og birgja. Leitað er að einstaklingi með sterka söluhugsun, góða tæknilega yfirsýn og áhuga á að móta lausnir sem mæta raunverulegum þörfum viðskiptavina.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og fagleg ráðgjöf tengd vélum, sjálfvirknilausnum og róbotum
- Hönnun og teiknivinna á heildarlausnum fyrir íslenskan iðnað
- Greining á þörfum viðskiptavina og mótun lausna í samstarfi við tækniaðila
- Samskipti við birgja og framleiðendur, innlenda sem erlenda
- Gerð tilboða, utanumhald með skráningu, framkvæmd kostnaðargreininga og eftirfylgni
- Uppbygging og viðhald langtímasambanda við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af tæknilegri sölu og ráðgjöf
- Góð hæfni í að greina þarfir og umbreyta þeim í framkvæmanlegar lausnir
- Mjög góð tölvuþekking og notkun stafrænna lausna
- Þekking á teikniforritum sem notuð eru við iðnaðar- og vélalausnir
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Þekking eða reynsla af virkni, uppsetningu eða viðhaldi vélbúnaðar er kostur
Advertisement published4. November 2026
Application deadline15. November 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Suðurhraun 4, 210 Garðabær
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Mandarínmælandi sölufulltrúi / Mandarin Speaking Sales Representative
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Starfsfólk í verslun - Helgarstarf - Selfoss
ILVA ehf

Sölumaður í verslun
Dynjandi ehf

Sölumanneskja í 20% í veitingageiranum
Borg99

Mechanical Designer
Borealis Data Center ehf.

Sölufulltrúar óskast í hlutastörf í verslun okkar á Keflavíkurflugvelli.
ICEWEAR

Jarðvarmasérfræðingur
EFLA hf

Sölufulltrúar í Sportvörur
RJR ehf

Sölu- og þjónusturáðgjafi - Verslun Akureyri
Sýn

Verkefnastjóri við borframkvæmdir
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða

Viltu leiða stórt Evrópuverkefni?
EIMUR

Söluráðgjafi Vatn og veitna, Selfossi
Vatn & veitur