
Sýn
Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Sölu- og þjónusturáðgjafi - Verslun Akureyri
Ertu snöll sölumanneskja með framúrskarandi þjónustulund? Þá gæti starf sölu- og þjónusturáðgjafa í verslunum Sýnar á Akureyri verið rétta starfið fyrir þig. Í verslunum Sýnar kynnum við glæsilegt vöruúrval okkar fyrir viðskiptavinum, hjálpum þeim að velja vörur sem henta og aðstoðum við notkun. Sölu- og þjónusturáðgjafar eru með mikið keppnisskap, hafa brennandi áhuga á tækni og nýjungum og eru ávallt viðbúnir að leita að bestu lausnunum fyrir hvern viðskiptavin. Við leitum að starfsmanni í fullt starf og er vinnutími frá kl 10-18 alla virka daga.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu- og þjónustustörfum æskileg
- Framúrskarandi þjónustulund
- Ánægja af sölumennsku
- Snyrtimennska og fáguð framkoma
- Góð ensku- og tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Metnaður og frumkvæði
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg
Fríðindi í starfi
- Frábæra vinnufélaga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Spennandi verkefni
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Möguleika á starfsþróun
- Internet- og farsímaáskrift
- Streymisveitu Sýnar og Viaplay
- Árlegan heilsustyrk
- Símtækjastyrkur
- Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Advertisement published3. November 2026
Application deadline9. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishOptional
Location
Gleráreyrar 1, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Verslunarstjóri á þjónustustöð Olís í Garðabæ
Olís ehf.

Sölufulltrúar óskast í hlutastörf í verslun okkar á Keflavíkurflugvelli.
ICEWEAR

Starfsmaður á lager
RJR ehf

Sölufulltrúar í Sportvörur
RJR ehf

Starfsmaður í Kjötdeild (hlutastarf) - Krónan Akureyri
Krónan

Þjónusturáðgjafi í varahlutadeild
Bílaumboðið Askja

Þjónustumiðja trygginga leitar að liðsauka á Egilsstöðum
Arion banki

Lyfjafræðingur - Apótekarinn
Apótekarinn

Þjónusturáðgjafi í Vík í Mýrdal
Arion banki

Fjármálaráðgjafi í Vestmannaeyjum
Landsbankinn

Lagerstarfsmaður hjá MAN á Íslandi
Kraftur hf.

Umsjónarmaður bíla á Akureyri
Brimborg