Advise Business Monitor
Advise Business Monitor
Advise Business Monitor

Sölustjóri – Advise ehf

Advise er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki í örum vexti og með háleit markmið. Við leitum að drífandi og sjálfstæðum sölustjóra sem ber ábyrgð á sölu, uppbyggingu sölupípu og árangursmælingum.

Þetta er sjálfstæð staða sem snýr að því að finna ný sölutækifæri, kynna húgbúnaðarlausnina, loka samningum og halda utan um CRM.

Helstu verkefni

  • Byggja upp og stýra sölupípu frá fyrstu snertingu
  • Finna og sækja ný tækifæri og vinna markvisst með lykilviðskiptavinum

  • Greina þarfir viðskiptavina og leiða söluferlið áfram

  • Halda vörukynningar og setja upp viðskiptafundi við líklega viðskiptavini

  • Byggja upp og viðhalda góðum samskiptum við stjórnendur og aðra lykilaðila

  • Halda CRM snyrtilegu, skrá samskipti og næstu skref

  • Skila skýrslum um sölupípu, söluspár og helstu mælikvarða

Hæfniskröfur

  • Reynsla af B2B sölu, helst í hugbúnaði/SaaS

  • Sjálfstæði, gott skipulag og sterkur drifkraftur

  • Góð samskiptahæfni, reynsla af sölu, samningum og framsetningu

  • Skilningur á gögnum gagnavinnslu og fjárhagsmælikvörðum

  • Þekking á rekstri fyrirtækja og þörfum þeirra í fjármálagreiningu

  • Reynsla af CRM og skýrslugerð (HubSpot er kostur)

  • Mjög góð íslenska og enska

Um Advise

Advise er íslensk hugbúnaðarlausn á sviði viðskiptagreindar, sniðin að þörfum stjórnenda og annarra hagsmunaaðila fyrirtækja. Lausnin veitir skýra innsýn í rekstur fyrirtækja, eykur aðhald og styður gagnadrifna ákvarðanatöku.

Meðal hluthafa Advise er Origo. Við vinnum stöðugt að framþróun lausnarinnar og stefnum á erlenda markaði á næstu mánuðum.

Umsókn

Sendu inn ferilskrá og stutta kynningu. Umsóknum verður svarað jafnóðum og farið er með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Advertisement published4. February 2026
Application deadline20. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Hlíðasmári 6, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags