Hyatt Centric Reykjavík
Hyatt Centric Reykjavík
Hyatt Centric Reykjavík

Sölustjóri

Hyatt Centric Reykjavík leitar að metnaðarfullum og árangursdrifnum einstaklingi í starf sölustjóra. Hér gefst einstakt tækifæri til að taka þátt í opnun hótelsins og byggja upp sterk viðskiptatengsl frá grunni. Hótelið verður staðsett á Laugavegi og markar komu alþjóðlegu hótelkeðjunnar Hyatt til Íslands.

Starfið felur í sér að þróa ný viðskiptatækifæri, efla tengsl við lykilsamstarfsaðila og styðja við uppbyggingu og vöxt Hyatt Centric Reykjavík.

Viðkomandi verður hluti af öflugu söluteymi Hyatt og vinnur náið með samstarfsfólki innanlands og erlendis.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í þróun og innleiðingu sölustefnu fyrir hótelið í samræmi við markmið og áherslur Hyatt

  • Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við fyrirtæki, ferðaskrifstofur, ferðaskipuleggjendur og aðra lykilsamstarfsaðila

  • Leita nýrra viðskiptatækifæra og vinna markvisst að aukinni sölu og tekjuvexti

  • Kynna hótelið á viðburðum, ráðstefnum og sölufundum innanlands og erlendis

  • Vinna náið með tekju-, markaðs- og rekstrarteymum að því að hámarka árangur

  • Fylgjast með markaðsþróun, samkeppnisumhverfi og sölutölum og greina tækifæri til vaxtar

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðeigandi menntun sem nýtist í starfi
  • Haldgóð reynsla af sölustörfum, viðskiptaþróun eða sambærilegum störfum
  • Reynsla úr hótel- eða ferðaþjónustu er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til að byggja upp sterk viðskiptasambönd
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvuþekking og reynsla af CRM-kerfum er kostur
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, fleiri tungumál gagnleg
Advertisement published18. June 2026
Application deadline7. July 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Laugavegur 176, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Business relations
Professions
Job Tags